Bílaflokkur hefur umsjón með bifreiðum Björgunarsveitar Hafnarfjarðar.
Bílaflokkur er þjónustuflokkur fyrir aðra hópa í sveitinni ásamt því að sinna öllum þeim fjölbreytu verkefnum sem berast björgunarsveit Hafnarfjarðar. Bílaflokkur fundar alla mánudaga þar sem vinnukvöld eru haldin í húsi björgunarsveitarinnar í bland við það eru framkvæmdar fjölbreyttar æfingar í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Einnig er farið í fjölbreyttar ferðir reglulega um allt land. Allir fullgildir félagar í Björgunarsveit Hafnarfjarðar geta starfað með bílaflokk.
Býr Björgunarsveit Hafnarfjarðar yfir fjölbreyttum bílaflota og er hann listaður hér fyrir neðan
Bílafloti sveitarinnar

Spori 1 – Ford Expedition
Árgerð 2022
Breytt af Renniverkstæði Ægis
Spori 1 er mikið breyttur jeppi fyrir 44” Nokian dekk sem er einstaklega rúmgóður og fer vel með bílstjóra og farþega. Bíllinn er léttur þrátt fyrir stærð og er knúinn af 3,5L Ecoboost bensínvél sem gerir það að verkum að hann hefur góða drifgetu í snjó. Spori 1 er einnig útbúinn öllum þeim búnaði sem öflug bifreið björgunarsveitar þarfnast eins og öflugu dráttarspili, fram- og afturlæsingum, verkfærum, sjúkrabúnaði, spjaldtölvu og gps tæki. Spori 1 er skráður sem neyðaraksturbifreið og vel útbúinn af auka ökuljósum, vinnulýsingu og blikkljósum. Er Spori 1 með sæti fyrir sjö


Árgerð 2021
Breytt af Renniverkstæði Ægis
Spori 3 er miðlungs breyttur jeppi fyrir 40” dekk sem er einstaklega rúmgóður og fer vel með bílstjóra og farþega. Bíllinn er knúinn af turbo díselvél sem gerir það að verkum að hann hefur góða dráttargetu og nýtist hann helst í þjónustu tækjahóps með vélsleða og fjórhjól sveitarinnar. Spori 3 er einnig útbúinn öllum þeim búnaði sem öflug bifreið björgunarsveitar þarfnast eins og öflugu dráttarspili, dráttarspili á sleðapalli, fram- og afturlæsingum, verkfærum, sjúkrabúnaði, spjaldtölvu og gps tæki. Spori 3 er skráður sem neyðaraksturbifreið og vel útbúinn af auka ökuljósum, vinnulýsingu og blikkljósum. Er spori 3 með sæti fyrir sex

Árgerð 2022
Kemur breyttur frá verksmiðju
Spori 4 er fólksflutningarbifreið er rúmgóður og fer vel með bílstjóra og farþega. Bíllinn er á 35” dekkjum og nýtist vel fyrir starf nýliða og unglingadeildar. Spori 4 er einnig útbúinn öllum þeim búnaði sem öflug bifreið björgunarsveitar þarfnast eins og öflugu dráttarspili, fram- og afturlæsingum, verkfærum, sjúkrabúnaði, spjaldtölvu og gps tæki. Spori 4 er skráður sem neyðaraksturbifreið og vel útbúinn af auka ökuljósum, vinnulýsingu og blikkljósum. Er spori 4 með sæti fyrir fjórtán

Spori 5 – Mercedes Benz Vito
Árgerð 2018
Breytt af Artic trucks
Spori 5 er fólksflutningarbifreið og nýtist í öll verkefni. Spori 5 er einnig útbúinn búnaði sem bifreið björgunarsveitar þarfnast eins og verkfærum, sjúkrabúnaði, spjaldtölvu og gps tæki. Spori 5 er skráður sem neyðaraksturbifreið og útbúinn af auka ökuljósum, vinnulýsingu og blikkljósum. Er spori 5 með sæti fyrir átta
Spori 10 – Ford Ranger Raptor
Árgerð 2024
Kemur breyttur frá verksmiðju
Spori 10 er jeppi sem sporhundahópur hefur til afnota. Spori 10 er einnig útbúinn búnaði sem bifreið björgunarsveitar þarfnast eins og verkfærum, sjúkrabúnaði, spjaldtölvu og gps tæki. Spori 10 er skráður sem neyðaraksturbifreið og vel útbúinn af auka ökuljósum, vinnulýsingu og blikkljósum. Er spori 10 með sæti fyrir fimm
Spori Sprengja – Mercedes Benz Atego
Árgerð 2012
Spori Sprengja er notaður við flutning á flugeldum en hefur þó verið notaður í allskonar verkefnum eins og við flutning á búnaði vegna jarðelda á reykjanesskaga