Markmið

Markmið Landflokks er að undirbúa meðlimi fyrir þær fjölbreyttu aðstæður sem við getum lent í, óháð aðstæðum og staðsetningu. Landflokkur leggur upp úr því að vera með áframhaldandi þjálfun sem byggir á þeim grunnatriðum sem eru kennd í nýliðaprógramminu, með því markmiði að vera besta björgunarsveitin í boði.

Uppsetning

Landflokkur er yfirheiti yfir þá hópa þar sem þekking einstaklinga á leit og björgun á landi skiptir sköpum.

Hóparnir sem tilheyra þessu sviði eru fjölbreyttir og skiptast í;

  • Fjallahópur
  • Leitarhópur
  • Óveðurshópur
  • Sjúkrahópur
  • Straumvatnshópur

Hver hópur hefur sína sérþekkingu sem nýtist með öllum Landflokk, þar sem útköll geta verið margvísleg. Áherslur hvers fundar eru miðuð út frá hópunum hér að ofan, sem skipta niður með sér verkefnum, skipulagi og búnaði. Þetta hvetur okkar fólk áfram í að ná sér í fjölbreytta þekkingu og samþætta hana. Þar að auka geta hóparnir tekið aukaæfingar sem fara dýpra í sérþekkingarsviðið.

Við í Landflokk viljum gera æfingarnar skemmtilegar, krefjandi og leyfa okkur að venjast erfiðum verkefnum á gönguhraða. Góður björgunarmaður býr yfir reynslu. Landflokkur vill hvetja fólk til að sanka að sér reynslu með fundum, ferðum og allskyns æfingum. Öll eru velkomin í Landflokk!

Hópar

Hér er stutt yfirlit um hvað hópar sérhæfa sig í og þróun innan þeirra.

Fjallahópur

Fjallahópur er fyrir þá sem vilja fara á fjöll!

Þetta er hópur fyrir þau sem gætu hugsað sér einn daginn að verða undanfarar, starfa með þyrlusveitinni eða vilja getað bjargað hundum úr sprungum.

Fjallamennska og fjallabjörgun eru einstaklega skemmtileg námskeið og mikilvægt að hafa þekkingu á fyrir góðan hóp þegar á að ferðast. Helstu atriðin til þess að æfa hér eru hnútar, klifur, sig og ankerasmiði

Leitarhópur

Leitarútköll eru ein algengustu útköllin okkar. Það er því nauðsynlegt að rifja upp grunnatriðin og halda æfingunni við. Þeir sem halda þjálfuninni sinni markvisst við eru mun líklegri til þess að ná árangri í leitum.

Innan leitarhópsins eru einnig drónahópur og leitarhundar, þetta er unnið í samstarfi við aðrar sveitir og þar af leiðandi frábær vettvangur til að kynnast öðrum meðlimum Landsbjargar.

Óveðurshópur

Hópur sem sérhæfir sig í þeim tæknilegu atriðum sem geta komið upp í óveðursútköllum. Markmiðið er að tryggja hverskonar óörugg svæði sem geta verkefnin verið allt frá því að festa niður hluti sem eiga venjulega ekki að hreyfast eins og klæðningarplötur, trampólín og flutningagáma, hvernig á að byrgja fyrir brotinn glugga og yfir í hvaða verkfæri nýtast okkar í óveðursútköllum og hvernig á að nota þau. Farið er yfir öryggisatriði í þessum aðstæðum, þar sem við erum jú að koma í veg fyrir meira tjón án þess að tjón verði á okkur sjálfum.

Skemmtilegar og fjölbreyttar æfingar í veðrum og vindum eru haldnar til þess að vera fær um að hugsa út fyrir ramman og leggja til lausnir sem gætu hentað hverju sinni.

Sjúkrahópur

Sjúkrahópur fer vel og reglulega yfir grunnatriðin í fyrstu hjálp. Það er svo mikilvægt að hafa þennan grunn á hreinu, bæði fyrir almenning og okkur sjálf. Það fólk sem er í kringum okkur er það fólk sem er líklegast að við hjálpum. Við erum því ekki bara að halda þessu við fyrir björgunaraðgerðir, heldur fyrir félagann og fjölskylduna líka. Það er rifjað reglulega upp þau kerfi sem okkur eru kennd í fyrstu hjálp 1 og 2, endurlífgun og aðbúnaður skjólstæðinga.

Straumvatnshópur

Straumvatnshópur hefur ekki verið virkur undanfarin ár en með auknum áhuga innan sveitarinnar er von um að hefja formlegt starf með haustinu um þau tæknilegu atriði sem koma að straumvatnsbjörgun. Mikilvægt er að rifja upp reglulega hættur og öryggisatriði í kringum straumvatn þar sem við getum verið í leitarútkalli en á straumvatnssvæði.