Unglingadeildin Björgúlfur er ætluð öllum áhugasömum einstaklingum á 15. – 18. aldursári. Fundir eru einu sinni í viku og er dagskráin fjölbreytt en hún miðar að því að búa ungt fólk undir nýliðaþjálfun hjá Björgunarsveit Hafnarfjarðar.

​Í starfi unglingadeildarinnar fær hópurinn kynningu á því starfi sem fram fer innan sveitarinnar, ásamt kennslu í hinum ýmsu þáttum tengdum starfinu. Sem dæmi má nefna ferðamennsku og rötun, fyrstu hjálp, leitartækni, fjallamennsku og fleira.

Farið er í fjölbreyttar ferðir í nærumhverfi okkar svo sem fjallgöngur, hellaferðir og margt fleira. Einnig er farið í lengri ferðir þar sem unglingar af öllu landinu hittast og skemmta sér saman. 

Hægt er að kynna sér reglur unglingadeildarinnar hér.