Dagsetning fyrir nýliðastarfið 2026-2028 verða kynntar þegar nær dregur. Það verða nýliðakynningar þar sem nýliðaþjálfunin verður kynnt og farið yfir dagskrá vetrarins.

Nýliðastarf Björgunarsveit Hafnarfjarðar er fyrir áhugasama einstaklinga sem náð hafa 18 ára aldri.

​Starfið hefst á haustin og tekur yfirleitt 18 mánuði. Á þessu tímabili hittast nýliðar að jafnaði eitt kvöld í viku á námskeiðum og fyrirlestrum en einnig er farið í dags- og helgarferðir. Þjálfunin miðar að því að kynna fyrir nýliðum starf sveitarinna og undirbúa hópinn fyrir það starf sem felst í því að vera fullgildur meðlimur. 

​Til þess að teljast fullgildur félagi þarf að ljúka öllum þeim námskeiðum sem Slysavarnarfélagið Landsbjörg skilgreinir sem björgunarmann 1 (sjá nánar á www.landsbjorg.is) auk námskeiðanna Fyrsta hjálp II og valnámskeiðs. Hefðbundinn tími þjálfunar eru 18 mánuður en hægt er að taka þjálfunina á lengri tíma ef einstaklingar kjósa svo. 

​Þegar líður á þjálfunina taka nýliðar aukinn þátt í almennu sveitarstarfi en einungis fullgildir félagar Björgunarsveita Hafnarfjarðar taka þátt í útköllum. Þar sem þjálfunin tekur 18 mánuði eru alltaf 2 hópar í þjálfun og eru skilgreindir sem N1 og N2

Ef þú hefur áhuga á að ganga til liðs við okkur má sjá frekari upplýsingar um skráningu hér.

OLYMPUS DIGITAL CAMERA