Sveitin var kölluð út ásamt öðrum björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu til leitar að fjórum göngumönnum sem höfðu villst í þoku á Sveifluhálsi. Sveifluháls er fjallgarður á milli Kleifarvatns og Djúpavatns.
Um tuttugu björgunarsveitarmenn úr Hafnarfirði svöruðu kallinu og tóku þátt í aðgerðinni.
Hópurinn fannst fljótlega og amaði ekkert að göngufólkinu. Leitarmenn komust því heim í tæka tíð til þess að horfa á leikinn. Áfram Ísland!!