Sveitin var kölluð út ásamt öðrum björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu til leitar að fjórum göngumönnum sem höfðu villst í þoku á Sveifluhálsi.  Sveifluháls er fjallgarður á milli Kleifarvatns og Djúpavatns.

Um tuttugu björgunarsveitarmenn úr Hafnarfirði svöruðu kallinu og tóku þátt í aðgerðinni.

Hópurinn fannst fljótlega og amaði ekkert að göngufólkinu.  Leitarmenn komust því heim í tæka tíð til þess að horfa á leikinn.  Áfram Ísland!!

Categories: Almennt