Meðlimir Björgunarsveitar Hafnarfjarðar fóru í dag með hjálpargögn til íbúa í Vík í Mýrdal.  Um var að ræða öryggisgleraugu og andlitsgrímur enda ekki vanþörf á vegna öskufalls á svæðinu.  Að því loknu voru heimamenn aðstoðaðir við að þrífa ösku af leikvöllum barna og lóð dvalarheimilis aldraðra svo eitthvað sé nefnt.

Ástandið er vægast sagt skelfilegt og erfitt að gera sér í hugarlund hvernig það er að búa á svæðinu.  Það er okkur því sönn ánægja að geta létt undir með heimamönnum á þessum tímum.

Categories: Almennt