Nú um nýliðna helgi kláruðu tveir meðlimir sveitarinnar fagnámskeiði í fyrstu hjálp (WFR). Námskeiðið er haldið á 8 dögum á Gufuskálum, þjálfunarmiðstöð Landsbjargar.
Á námskeiði þessu er farið yfir öll helstu atriði fyrstu hjálpar og skilningur björgunarmanna á hinum ýmsu heilsufarskvillum dýpkaður til muna.
Kunnátta þessi á vafalaust eftir að nýtast þessum meðlimum sveitarinnar vel í framtíðinni.