Á morgun, 28. desember, hefst flugeldasala Björgunarsveitar Hafnarfjarðar.
Sölustaðirnir eru eins og undanfarin ár:
Klettur, Hvaleyrarbraut 32 – aðkoma frá Lónsbraut
Hvalshúsið, Flatahrauni
Tjarnarvellir
Opið er frá 10-22 dagana 28.-30. desember og frá 9-16 á Gamlársdag.
Svo er einnig hægt að slappa af heima hjá sér og skoða netverslunina, verslun.spori.is og kaupa allar okkar vörur þar og sækja svo á Hvaleyrarbrautina – jafnvel beint útí bíl.