Áramótablað BSH er nú komið út. Blaðið ætti að vera komið í lúgur allra bæjarbúa en fyrir þá sem ekki fengu það er hægt að lesa blaðið hér með því að smella á myndina hér að neðan:

Áramótablað BSH 2021-2022

Í dag hófst flugeldasalan hjá okkur, sölustaðirnir eru eins og undanfarin ár:
Klettur, Hvaleyrarbraut 32 – aðkoma frá Lónsbraut
Hvalshúsið, Flatahrauni
Vellir

Svo er einnig hægt að slappa af heima hjá sér og skoða netverslunina, verslun.spori.is og kaupa allar okkar vörur þar og sækja svo á Hvaleyrarbrautina – jafnvel beint útí bíl. Drögum úr smithættu og verslum á netinu.

Categories: Fjáraflanir