Rétt fyrir kl.9:00 í morgun staðfesti LHG að gosmökkur kæmi úr Eyjafjallajökli, en á áttunda tímanum í morgun fór hún í loftið, ásamt raunvísindamönnum. Nær hann í 12-14.000 feta hæð. Er gatið á jöklinum rétt suð-vestur af toppi jökulsins og er um 200 metrar í þvermál. Samt sem áður virðist sem að rennsli úr jöklinum streymi niður Gígjökul og út í Markarfljót. Vatnsmagnið í Markarfljóti, við gömlu brúna hafði hækkað um 80 cm á mjög stuttum tíma.
Mikill jarðskjálftaórói hófst í jöklinum um kl.23:00 í gærkvöldi og mældist sterkasti skjálftinn 2,8 á Richter, en stöðug virkni var til kl.02:00 í nótt.
Fyrstu björgunarsveitirnar voru kallaðar út um kl.01:30, en þeirra hlutverk var að aðstoða við rýmingu og upplýsa bílstjóra um yfirvofandi eldgos, en ekki kom til lokunar á umferð fyrst um sinn. Um kl.04:00 var farið í að loka svæðinu fyrir umferð, frá Skógum að Hvolsvelli.