Eldgos hófst í Eyjafjallajökli, nú rétt fyrir miðnætti.  Um er að ræða sprungu, sem er ca. 1 km að lengd og er staðsett norðanlega í Fimmvörðuhálsi.  Þar sem sprungan er ekki í jöklinum sjálfum, þá er ekki mikil hætta á vatnsflóði, en jarðvísindamenn spá því að sprungan gæti fært sig til vesturs og lendi þá undir Eyjafjallajökli.  Staðsetning á sprungunni er, N63°38,600′ / W19°26.400′ og liggur SV-NA.  Búið er að loka vegum við Hvolsvöll og Vík.  Rýmingu er lokið á svæðinu.  Flugvöllum á suður- og suðvesturlandinu hefur verið lokað og öllu flugi frestað.

Categories: Almennt