Við viljum færa innilegar þakkir til Guðjóns Rúnars Sveinssonar, sem nú lætur af störfum sem formaður, Smára Guðnasonar, sem lætur af störfum sem varaformaður, og Sigurðar Magnússonar, sem lætur af störfum sem gjaldkeri, fyrir þeirra framlag og vel unnin störf. Við erum afar þakklát fyrir þann tíma, kraft og elju sem þeir hafa lagt í þessi mikilvægu störf.

Sérstaklega viljum við einnig nefna að Gylfi Sigurðsson var gerður að heiðursfélaga sem þakklætisvott fyrir hans framlag.

Um leið bjóðum við Sæmund Bjarna Kristínarson velkominn í hlutverk varaformanns og Valdísi Huld Jónsdóttur í hlutverk formanns. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og þeirra verkefna sem fram undan eru.

Á mynd má sjá þennan flotta hóp!

Sæmundur Bjarni varaformaður, Guðjón Rúnar fyrrum formaður, Gylfi heiðursfélaga, Smári fyrrum varaformaður, Sigurður fyrrum gjaldkeri og Valdís Huld formaður.

Categories: Almennt