Flugeldasýning Björgunarsveitar Hafnarfjarðar verður haldin í kvöld kl 20:30 ef veður leyfir.  Fylgst er með veðurspá og ef brestur á stormur verður henni frestað fram á þrettándann.  Eins og staðan er þegar þetta er skrifað mun flugeldasýningin verða.  Verði sýningunni frestað munum við tilkynna það hér á síðunni.

Björgunarsveit Hafnarfjarðar vill þakka Íslandsbanka og Vélsmiðju Halta Einarssonar fyrir að styrkja sýninguna, án þeirra hefði hún ekki getað orðið að veruleika.

Categories: Almennt