Nýliðakynningar Björgunarsveitar Hafnarfjarðar verða haldnar mánudaginn 2. september og fimmtudaginn 5. september klukkan 20:00 í húsnæði sveitarinnar við Flatahraun 14.

Langar þig að starfa í einni öflugustu björgunarsveit landsins?

Í nýliðaþjálfun færð þú tækifæri á að byggja upp reynslu og þekkingu til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni björgunarsveita. Ef þú hefur áhuga á jeppamennsku, fjallamennsku, fjarskiptum, sjóbjörgun eða vélsleðum þá er þetta eitthvað sem þú vilt prófa. Nýliðastarfið er fyrir þá sem eru fæddir 1996 eða fyrr.

Categories: Almennt