Rétt um kl.16:15 í dag voru allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu kallaðar út, vegna óveðurs. Borist hafa um 230 aðstoðarbeiðnir, sem voru af öllum toga, s.s. fok á hlutum, brotnir hlutir, þakkantar o.fl. 3-4 hópar frá BH hafa verið að störfum í dag, samtals um 16 manns. Rúmlega 30 hópar á höfuðborgarsvæðinu voru að störfum fram eftir kvöldi, en síðustu hóparnir fengu að halda heim á leið, rétt um kl. 22:00.
Fréttastofur fylgdust með gangi mála í dag, en einn netfréttamiðillinn, sannleikurinn.com sló á létta strengi um eitt af verkefnum okkar fólks.
Hægt er að sjá fréttina með því að smella hér
Einnig birtist önnur frétt frá Sannleikanum