Fimmtudaginn 1. nóv 2018 um kl. 16:12 barst útkall til Björgunarsveitar Hafnarfjarðar vegna lendingar flugvélar á Keflavíkurvelli. Flugvélin var með slökkt á öðrum hreyflinum. Fjöldi félaga svaraði boðinu enda voru margir þegar í vinnu fyrir sveitina við sölu á Neyðarkalli og því nær höfuðstöðvum en ella. Vélin lenti án vandkvæða nokkrum mínútum eftir að útkall barst og fóru þá félagar aftur til vinnu eða á sölustaði eftir atvikum. Allt er gott sem endar vel.
Almennt
Þakklæti og nýtt upphaf.
Við viljum færa innilegar þakkir til Guðjóns Rúnars Sveinssonar, sem nú lætur af störfum sem formaður, Smára Guðnasonar, sem lætur af störfum sem varaformaður, og Sigurðar Magnússonar, sem lætur af störfum sem gjaldkeri, fyrir þeirra Read more…