Að beiðni Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu hefur Björgunarsveit Hafnarfarðar verið sett í viðbragðsstöðu vegna stormviðvörunar. Sveitin biður fólk um að ganga úr skugga um að engir lausir hlutir séu í nágreni sínu sem gætu fokið. Veðrið ætti að vera gengið yfir um miðnætti í nótt.
Ef aðstoðar sveitarinnar er þörf skal hringja í 112 sem tekur við aðstoðarbeiðnum.