Björgunarsveit Hafnarfjarðar hafði í nógu að snúast þessa helgina.
Á föstudag byrjuðu nýliðar á Fjallamennskunámskeiði í Esjunni undir leiðsögn nokkura undanfara sveitarinnar og nokkrir félagar sjóflokks á áhafnanámskeiði björgunarskipa. Þessi námskeið voru svo alla helgina.
Laugardagsmorgun fór vaskur hópur félaga sveitarinnar að bjarga kind er hafði varpað sér niður í Krísuvíkurbjarg. Sat hún föst í sprungu töluvert fyrir neðan bjargbrúnina. Sveitin er vön vinnu i bjarginu og tók því ekki langan tíma að ná kindargreyinu upp á brún.
Að björgun lokinni smellti bílaflokkur sér svo á Lyngdalsheiði og Skjaldbreið. Á sama tíma og bílar náðu á topp Skjaldbreiðs kom símhringing og beiðni um aðstoð. Fjögurra manna fjölskylda var stopp á biluðum bíl við rætur fjallsins. Var því lítið annað að gera en að draga bílinn niður að Gjábakkavegi og bjóða fólkinu far í bæinn.
Um kvöldmatarleyti var tilkynnt um slys á manni í Esjunni. Undanfarar voru með nýliða sveitarinnar á námskeiði í skálanum Þrist sem er undir Móskarðshnjúkum og buðu fram aðstoð sína sem var þegin. Bílarnir voru þá á heimleið við Þingvelli og brugðust einnig við kallinu. Manninum var því næst komið í þyrlu og þeir sem komu að manninum keyrðir til byggða.
Góð helgi.