Óskar Steinn Ómarsson hefur verið ráðinn í hálft starf á skrifstofu Björgunarsveitar Hafnarfjarðar. Hann tók við starfinu þann 15. ágúst síðastliðinn og sinnir verkefnum sem snúa að daglegum rekstri sveitarinnar, skipulagi fjáraflana, aðstoð við formenn flokka og öðru sem honum er falið af stjórn. Óskar hefur verið virkur í starfi sveitarinnar frá árinu 2021.

Hafa má samband við Óskar á tölvupósti í gegnum netfangið starfsmadur@spori.is.

Categories: Almennt