Fjórhjólahópur skellti sér inn í Jökulheima á miðvikudagskvöldið og gisti þar yfir nótt. Að morgni fimmtudags var haldið upp á Vatnajökul og keyrðir nánast 100km. Færið upp jökulinn var frekar þungt, blautt og mikil sólbráð. Þurfti að stoppa oft á uppleiðinni til að leyfa vélinni að kólna, en ekki reyndist vel að aka hægt í þessu færi.
Í Skaftárkötlum hittum við Vísindamenn frá Vatnamælingum við gagnaöflun frá mælistöðvum. Rennt var aðeins ofar á jökulinn en mun þéttara og betra færi var yfir 1600m. Reynd voru ný 27″ dekk á hjólin í ferðinni og komu þau mjög vel út. Í þessu færi var eldsneytiseyðsla þó mun meiri en vanalega í eða um 30L/100km. Hjólin fóru létt með krapann neðst á jöklinum og var einstaklega auðvelt að aka þeim gegnum jökulruðninga.
Þessi ferð er enn ein ábendingin um fjölhæfi og góða yfirferð þessara tækja í björgunarstarfi og hafa þau reynst okkur vel í þeim útköllum sem þau hafa verið nýtt í.