Langar þig að starfa í einni öflugustu björgunarsveit landsins?

Nýliðakynning Björgunarsveitar Hafnarfjarðar verður haldin miðvikudaginn 6. september klukkan 20:00 í húsnæði sveitarinnar við Hvaleyrarbraut 32 (gengið inn Lónsbrautarmegin).

Í nýliðaþjálfun færð þú tækifæri á að byggja upp reynslu og þekkingu til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni björgunarsveita.
Ef þú hefur áhuga á útivist, jeppamennsku, fjallamennsku, fjarskiptum, sjóbjörgun eða vélsleðum þá er þetta eitthvað sem þú vilt prófa. Nýliðastarfið er fyrir þá sem eru fæddir 2000 eða fyrr.

nylidakynning_bsh

Categories: Nýliðastarf