Mánudaginn 2. mars fengum við afhenta afar veglega gjöf frá Slysavarnardeild Hraunprýði. Gjöfin nemur 1,5 milljónum króna og er veitt sem framlag upp í bátakaup.

Slíkur stuðningur skiptir okkur gríðarlegu máli. Endurnýjun og uppbygging búnaðar er ein af undirstöðum þess að við getum sinnt verkefnum okkar af fagmennsku, öryggi og skilvirkni. Framlagið kemur því á afar mikilvægum tímamótum og styrkir starfsemi okkar til muna.

Við viljum færa Slysavarnardeild Hraunprýði okkar innilegustu þakkir fyrir rausnarlegan stuðning, traust og velvilja í okkar garð. Það er ómetanlegt að finna fyrir slíkri samstöðu og stuðningi úr nærumhverfinu. Með þessari gjöf leggja þau sitt af mörkum til að efla öryggi og viðbragðsgetu til framtíðar.

Við erum afar þakklát og hlökkum til að halda áfram góðu samstarfi!

Á mynd má sjá Kristján formann Sjóflokks, Ingibjörg fyrrum gjaldkera Hraunprýðis, Erlu gjaldkera Hraunprýðis/aðstoðargjaldkera BSH, Smára fyrrum varaformaður BSH og Sigurbjörgu fyrrum formann Hraunprýðis.

Categories: Almennt