![Djúpavatn](https://i0.wp.com/fbcdn-sphotos-g-a.akamaihd.net/hphotos-ak-ash3/1512444_10152132654930446_1385774969_n.jpg?resize=403%2C227&ssl=1)
Spori 2 og Þorbjörn 1 aðstoða fastan bíl við djúpavatn. Mynd: Páll Ívar Rafnsson
Í kvöld kl. 19:40 var Björgunarsveit Hafnarfjarðar kölluð út til aðstoðar Björgunarsveitarinnar Þorbjörns úr Grindarvík. Þeir höfðu sjálfir verið í útkalli að leysa fastan bílaleigubíl við Djúpavatn þegar jeppinn hjá þeim affelgaðist. 4 félagar fóru á Spora 2 til aðstoðar með varadekk og góða skapið. Þegar dekkja vandamálin voru leyst aðstoðuðu félagar BSH svo Grindvíkingana við að leysa fasta bílinn og héldu svo allir heim á leið.