Farið var með um 20 nýliðum í gönguferð úr Emstrum yfir í Bása um nýliðna helgi.

Ferðin tókst að vonum vel og voru allir ánægðir í lok helgarinnar, jafnt nýliðar sem leiðbeinendur.  Ágætis veður var á svæðinu þó það hafi rignt töluvert á sunnudaginn.  Það kom þó ekki að sök því allir voru bleyttir í Nauthúsagili þar sem fólk fékk að vaða undir og stökkva fram af fossum.

Næst á dagskrá er fyrirlestur um fjarskipti nú á miðvikudaginn og rötunarnámskeið næstu helgi.

Categories: Æfingar