Miðvikudaginn 30. ágúst verður nýliðakynning Björgunarsveitar Hafnarfjarðar. Kynningin fer fram í Björgunarsmiðstöðinni Kletti klukkan 20:00. Þar verður nýliðastarfið kynnt ásamt starfi sveitarinnar.

Inntökuskilyrði í nýliðastarfið eru eftirfarandi

1. Vera á 18. ári eða eldri þegar nýliðastarfið hefst. 

2. Vera heilbrigður á sál og líkama. 

3. Hafa kynnt sér siðareglur BSH og SL og skuldbinda sig til að starfa eftir þeim. 

4. Hafa þekkingu á íslensku máli og geta bjargað sér við daglegar aðstæðurþess má geta að öll kennsla og próf eru á íslensku. 

5. Hafa veitt skriflegt leyfi fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá.

Við hvetjum alla sem hafa áhuga á starfinu að kíkja og kynna sér starfið.

Hér er hlekkur á viðburðinn á Facebook.

Kynningarfundur á unglingastarfinu verður 31. ágúst klukkan 20:00. Hér er hlekkur á viðburðinn.

Categories: Nýliðastarf