Í dag fóru 12 nýliðar í umsjón sjóflokks að sigla á Bs.Einari Sigurjónssyni og Bb. fiskakletti. farið var stuttur hringur yfir í höfnina í kópavogi þar sem nýliðum var kennt alskyns hlutum s.s. að velta björgunarbátum , notkun björgunarnets og margt fleira. þaðan fór hópurinn í flugskýli landhelgisgæslunar þar sem skoðuð voru loftför hennar og starfsemi flugdeildar LHG var kynnt. þaðan var aftur siglt í Hafnarfjörðinn og voru allir komnir aftur í sjóbúðina um sexleytið
![Nýliðar nota björgunarnet (Mynd Sigurður Magnússon)](http://sphotos-f.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash4/421573_10200683558841576_70521725_n.jpg)
Nýliðar nota björgunarnet (Mynd Sigurður Magnússon)