Um kl. 12:45 á föstudag kom útkall frá 112, vegna óveðurs á Höfuðborgarsvæðinu. Rétt um 30 manns komu að útkallinu með einum eða öðrum hætti.
Flest verkefnin hjá okkar sveit var að festa niður þakplötur og ná í kör sem voru að fjúka. Vellirnir, Áslandið, Stuðlaberg, Suðurvangur og Síðumúli voru meðal þeirra staða sem farið var á hjá okkur, en farið var á alls 11 staði.
Á tímabili vorum við með 3 bíla úti á sama tíma. Mæting var með ágætum.
Var öllum verkefnum lokið og fengum við að fara heim um kl. 19:00