Flugeldasalan í fullum gangi

Nú er flugeldasalan hjá okkur komin á fullt og allt hefur gengið vel fyrir sig. Í ár erum við með fjóra sölustaði, þá sömu og í fyrra en þeir eru: Risaflugeldamarkaður, Flatahrauni 14 Við verslunarmiðstöðina Fjörð Fornubúðir við smábátahöfnina Haukahúsið á Ásvöllum Flugeldasýningin verður við höfnina þann 29. desember kl Read more…

Jólakveðja

Kæru félagar og vinir Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, við viljum jafnframt þakka ykkur öllum fyrir gott og farsælt samstarf á liðnum árum. Bestu kveðjur Stjórn Björgunarsveitar Hafnarfjarðar

Nóg um að vera hjá sveitinni þessa helgina

Um núliðna helgi var ýmislegt í gangi hjá Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Sex einstaklingar eyddu helginni á Úlfljótsvatni þar sem grunnnámskeið Íslensku Alþjóðasveitarinnar fór fram. Fjórir sátu námskeiðið og höfðu mikið gaman af. Á námskeiðinu er farið í gegnum alla innri virkni Íslensku Alþjóðasveitarinnar auk þess sem að menn og konur fræðast Read more…

Sögulegur áfangi!

Fimmtudaginn 4.nóvember var skrifað undir samstarfsamninga milli Hafnarfjarðarbæjar, Björgunarsveitar Hafnarfjarðar og slysavarnadeildarinnar Hraunprýði auk þess var skrifað undir samtarfssamning milli Hafnarfjarðarhafnar og Björgunarsveitarinnar. Samningar þessir eru afrakstur vinnu sem farið hefur fram undanfarin misseri, í samningunum felast ýmis sameiginleg verkefni aðila auk almenns stuðnings bæjarfélagsins. Í samningunum fellst mikil viðurkenning Read more…

Köfunaræfing í Hafnarfjarðarhöfn.

Í kvöld stóð köfunarhópur sveitarinnar fyrir köfunaræfingu í höfinni við Björgunarskipið Einar Sigurjónsson. Æfingin hófst klukkan 8. Ásamt köfurum sveitarinnar mættu á svæðið kafarar frá Björgunarsveitinni Ársæli. 3 dúkkur voru settar útí og leitað að þeim. Aðstæður voru góðar, veður milt og enginn vindur. Á botninum var ekkert skyggni en Read more…

Björgun 2010

Um síðastliðna helgi fór fram á Grand Hótel Reykjavík, ráðstefnan Björgun 2010.  Dagana fyrir Björgun, voru tvær ‘systurráðstefnur’, en það voru “Almannavarnir Sveitafélaga” og “Verkfræði, Jarðskjálftar og Rústabjörgun”. Björgun hófst á fyrirlestrinum “Íslenska Alþjóðasveitin á Haítí 2010”, en þar fóru þeir Gísli Ólafsson og Ólafur Loftsson yfir ferli ÍA, frá því Read more…

Leit að 16 ára stúlku

Rétt um klukkan 18:00, laugardaginn 16. október, voru allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu kallaðar út, til leitar að 16 ára stúlku, Ísold Önnu Árnadóttur.  Hennar hafði verið saknað síðan um miðjan dag og sást síðast við heimili sitt í Breiðholti.  Ágætis mæting var hjá okkur, en um 13 mættu til leitar. Read more…

Útköll og æfingar seinustu helgi.

Nóg er um að vera hjá Björgunarsveit Hafnarfjarðar einsog sjá má á seinustu fréttum. Þessi helgi var engin undartekning en félagar sveitarinnar byrjuðu helgina á útkalli á föstudaginn þar sem leitaðir voru slóðar í kringum höfuðborgarsvæðið. Sveitin sendi í útkallið 2 fullbreytta jeppa ásamt 2 öðrum bílum sem keyrðu slóða Read more…

Mikið um að vera síðustu helgi.

Björgunarsveit Hafnarfjarðar sat ekki aðgerðarlaus síðustu helgi. Nýliðar fóru á rötunarnámskeið á Úlfljótsvatni og lærðu þar um kortalestur og áttavitanotkun. Samhliða rötunarnámskeiðinu voru nýliðar á seinna ári að læra félagabjörgun í umsjón undanfarahóps sveitarinnar en það námskeið var einnig á Úlfljótsvatni. Sjóflokkur sat heldur ekki í leti og sendu mann Read more…