Símon lagður af stað

Klukkan 9:00 síðastliðinn laugardag lagði félagi úr Björgunarsveit Hafnarfjarðar, Símon Halldórsson, af stað í 19000km hjólreiðaferð frá Íslandi til Kína.  Ferðin mun leiða Símon í gegnum 20 lönd á þeim 11 mánuðum sem hún mun taka.  Félagar úr björgunarsveitinni ásamt Read more…

Aðalfundur


Ragnar var kjörinn nýr formaður sveitarinnar.

Ragnar var kjörinn nýr formaður sveitarinnar.

Aðalfundur sveitarinnar var haldinn sl. fimmtudag. Breytingar urðu á stjórn sveitarinnar. Stjórnina skipa eftirtalin:

Stjórn:
Formaður:                 Ragnar Haraldsson
Varaformaður:           Dagbjartur Brynjarsson
Ritari:                        Elíza Lífdís Óskarsdóttir
Gjaldkeri:                   Sigrún Sverrisdóttir
Aðstoðargjaldkeri:     Róbert Óskar Cabrera
Meðstjórnendur:        Kolbeinn Guðmundsson
Þór Magnússon
Varamenn:                Sigurjón M. Ólafsson
Þórólfur Kristjánsson

Frá vinstri: Sandra Birna, Egill Örn, Aðalsteinn, Andri Rafn, Atli og Daníel

Frá vinstri: Sandra Birna, Egill Örn, Aðalsteinn, Andri Rafn, Atli og Daníel

Við þökkum fráfarandi formanni, Júlíusi Þór Gunnarssyni kærlega fyrir vel unnin störf síðastliðin 10 ár. Einnig þökkum við Hörpu Kolbeinsdóttir, fráfarandi varaformanni og Ragnari Heiðari Þrastarsyni fyrir vel unnin störf.

Sex nýjir félagar skrifuðu undir eiðstaf sveitarinnar á fundinum en það eru: Sandra Birna, Egill Örn, Aðalsteinn, Andri Rafn, Atli og Daníel. Þau luku fyrir stuttu nýliðaþjálfun sveitarinnar. Við óskum þeim til hamingju með að vera komin í sveitina.

Einnig var tillaga uppstillinganefndar um eftirtaldar stöður samþykkt án mótframboða. Smellt á meira fyrir niðurstöður fundarins.

(more…)

Blóðgjöf

Félagar úr Björgunarsveit Hafnarfjarðar fóru í hópferð fyrir aðalfund síðastliðinn fimmtudag til þess að gefa blóð hjá Blóðbankanum.  Mikil vöntun hefur verið á blóði undanfarið og hvetjum við alla sem geta til að fara og gefa blóð.  Blóðgjöf er lífgjöf!

Björgúlfur 30 ára

Unglingadeildin Björgúlfur verður 30 ára laguardaginn 11. febrúar. Haldið verður uppá afmælið í húsnæði Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, Flatahrauni 14, fimmtudaginn 9. febrúar kl 20. Sýndar verða myndir úr starfi deildarinnar undanfarin ár. Léttar veitingar í boði. Fyrrum félagar Björgúlfs og velunnarar Read more…

Vel heppnuð skíðaferð

Nú um síðastliðna helgi fór 11 manna hópur frá sveitinni norður á Akureyri í skíðaferð. Ferðin heppnaðist mjög vel og allir komu sáttir heim. Gist var í húsnæði Súlna og þökkum við þeim kærlega fyrir gestrisnina.

Subscribe to our Newsletter

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua.